raektum blom i stad thess ad heyja strid :*
myndir teknar med aparat photo :D
21.03.2007 11:00:50 / begga

sæl =)

kvefið hefur yfirtekið mig, mér líður eins og horskrímsli eins getnaðarlega og það hljómar...  ég er búin að vera í dag og i gær að dæla hori upp úr tæplega 7 mánaða barni með hordælutæki, honum finnst það frekar súrt og örugglega byrjaður að líta á mig sem rót alls ills... nóg um hor?

það hefur nú ekki mikið gerst síðastliðnu viku, nema bara það að ég fór í ræktun líkamanns 3 daga í röð... 1 daginn tók ég hollustuna... 2 daginn fór ég beint og fékk mér nammi... 3 daginn fór ég beint og fékk mér mcdonalds... dugleg? hef ekki farið síðan... lýg að sjálfri mér að það er svo mikið að gera...

 á einhver eðlisfræði 203 glósur handa mér??? eða bara einhver sem er búin með eðlisfræðina sem getur breytt um líkama við mig á meðan ég tek prof í EFTA dómstólnum... hversu virðulegt er það??

 karí takk fyrir pakkann.. hann var kærkomin gjöf við óhollustuna... takk fyrir bréfið líka, það var kærkomin gjöf við feitu litlu smábæjarslúðurkerlinguna sem býr innra með mér... pabbi og pála sendu mér lika s og h og skessuhron sem var ekkert nema gull.. allar stelpurnar í ungfrú vesturland voru alveg glæsilegar og mér var sagt að þær gætu ekki hafa staðið sig betur . þannig til hamingju allar ;)

ég er húkkt á mæspeis.. fer þarna á hálftímafresti til að líta á sósjalstöðuna..

ég er í andlegu ég var að vakna móki þannig þetta hlitur að vera mest óspennandi færsla sem mannkynið hefur alið af sér...

við erum samt að fara að flytja á laugardaginn... á stað þar sem er isdn gamla hringi tengingin , fyrstu vikuna líklegast ekki símasamband, og adsl kemur ekki fyrr en í maí... já inn í framtíðina?

látum leiðnlegt vera nóg..

smá upprifjun yfirefni fræslunnar:

hor

líkamsræktarodugnaður

takkapakk

mæspeis

torfbær

til að vera áfram á óspennandi nótunum ætla ég að enda færsluna á mynd af guðríði, gömlu slúðurkerlingunni sem býr innra með mér...

kv. óspennandilífsbegga...


» 10 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 09:44:45 / begga

sæl =)

ég er þá (löngu) komin heim úr ferðinni til austurríkis... keyrði báðar leiðir í 8 tíma.. FJÖÖÖR! fékk heilahristing fyrsta daginn... FJÖÖR! ég hélt á tímabili að heilinn væri á leiðinni út úr hausnum á mér.. ég er öll í djamminu... en það var samt mjög gaman, nokkur vel valin brettaspor tekin, gist á austurísku gistihúsi, þar sem var 4 rétta máltíð á hverju kvöldi sem eftir fylgdi ótrúlega óendanlega leiðinleg austúrísk tónlist, ýmist á trompet eða harmonikku... já þið rokkið feitt!

 ég vill samt tileinka þessari færslu einum gjafmildasta, frábæra, vingjarnlegast og opnasta manni sem ég hef verið svo heppin að kynnast, honum óla í olís. það er ótrúlega sorglegt þegar menn á besta aldri falla frá, sérstaklega þeir sem gefa lífinu svo mikin lit. Ef allir væru með ekki nema dropa af góðmennsku óla þá væri heimurinn strax mun betri staður. Hvíl þú í friði elsku óli...

ég var að lesa minningargreinina um hann og tárin bara hætta ekki að flæða, litli strákurinn horfir á mig liggur við með samúðaraugum ef hann vissi hvað samúð væri =) jæja væmni..

en á föstudaginn fórum við stelpurnar út á lífið og ég var svo félagslega svelt og þyrst að ég fékk mér kannski einum of marga, þarna vorum ég og tóta, ráfuðum saman um múkó eins og einhverjir uppvakningar og enduðum svo í klessu í aftur sætinu í bílnum hennar berglindar.. fjöör! en náðum samt að taka 210 myndir sem allar voru teknar í þeim tilgangi að vera ótrúlega heit mæspeis mynd. ég bíð ennþá spennt eftir útkomunni...

svo í gær lennt ég í mesta lúðaskap í heimi, ég og elísabet vorum að far  inní bílastæða hús, vorum búnar ða gleyma að það væri svona ferðabox upp á jeppanum, við í mesta sakleysi keyrum inn og *krass* boxið í loftið og við fastar inní bílastæðahúsinu, halldór þurfti ða koma og taka boxið af því slökkvuliðsmennirnir sem voru á staðnum voru greinilega ekki vinnufærir og datt ekki í hug að hjálpa svo umferðin myndi halda greiðar áfram, mér var s.s. hennt út í djúpulaugina að tala við þessa skinkudrengi og stóð þarna útí í öllu ferlinu, þannig ég birtist pottþétt á næstu forsíðu lúxemborgísku slúðurblaðanna sem háfvitinn sem festi bílinn í bílastæðahúsi... fólk aksjúlí benti og hlóg af mér.. ps. ég keyrði ekki bílinn..! eftir að boxið náðist af forðuðum við okkur úr þessu molli og ætlum ekki ða láta sjá okkur þar aftur fyrr en á næsta ári...

svo skróaði ég mig í likamsræktarstöð í gær og fagnaði því með að kaupa mér súkkulaði, gos og ís... bætt líf byrjar í dag...

ég núna                                                     ég efirá... (ég ætla líka í ljós)

kv. sorgar-heilsu-lúðabegga...


» 16 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 07:49:48 / begga

sæl =)

farin til austurríkis í skíðaferð í viku... sjáumst

amma til hammó með ammó...

 perustelpur... ég lagði mig í gær og var með símann á silent óvart og svo vaknaði ég klukkan 1:30 bara foooookk, sORRY og ég fékk ekki smsið með númerinu hennar rakelar...

 en allavega skíðaddjamm

 

blelli


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 23:01:35 / begga

sæl =)

hér kemur ógó stutt færsla...

 -á föstudaginn fór ég í fyrstu ferðina mína í sjúkrabíl...

-útaf því að vala labbaði á vegg...

-ég borðaði ótrúlega góðan mat á föstudaginn... takk dóra

-fór til brussel á sunnudaginn

-gisti á the plaza (in your faces)

-fór til antwerpen á laugardaginn

-var rænd af nokkrum búðum þar

-í gær var miðvikudagsbíó + djamm

-það var ótrúlega næs að komast heim kl 5 í nótt að horfa á angels in america

-eftir að sigrún náði að slíta sig lausa frá ótrúlega ósjarmerandi flokki óherramanna

-angels in america er ótrúlega falleg þáttaserja með óendanlega fallegan boðskap

-hvað er málið með britney spears og klámráðstefnuna í rvk

-ég vota fyrir því að það verði látið í friði

-hvar get ég fundið rétta einkunnabreyti frá ísl eink yfir í danskar eink??

-ég er ekki búin að hreyfa mig í ár.. hver með í þrek í sandweiler..??

-mig langar til amsterdam ... hver með??

kv. lygabegga (færslan var ekkert það stutt + allar lygarnar í æsku)


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 22:00:50 / begga

sæl =)

ég er orðin virkilega frumlega á titla í færslunum mínum... allavega.....

 í dag er valentínusardagur, dagur elskenda vítt og breitt um heiminn, það eru kannski ekki allir jafn sáttir með þennan "kærleiksdag" eins og t.d. ég og ýmsir herskáir múslimar sem ætla að hýða öll pör sem sýna ástúð.. ef ég væri ekki þessi jafnaðargeðsmanneskja þá myndi ég taka undir með þeim.. það væri samt frekar vafasamt ef ég þessi saklausa unga stúlka tæki upp á því að ráðast á grunlaust fólk og hýða það af biturð...

s.s. biturð dagsins... = valentínardagurinn

<---fann huggun í þessari mynd.. =)

 og í tilefni hans og því að tóta (pera) er búin að vera í mömmuleik með veikt barn tvo daga í röð þá fórum ég, vera og tóta í huggunarverslunar / átferð, vorum á pizzahut og báðum um pizzasósu til að dýfa pítsuskorpunni oní, konan horfði á okkur með mesta "kreisíæslendigpíol" augnaráði og sagði okkur svo að ekki væri hægt að kaupa slíka sósu þar sem hún væri í eldhúsinu, hefur haldið að við ætluðum að efnagreina sósuna og finna pizzahut leyndarmálið.. ætlaði svo að fara á singlesnight á víking bar en vegna fitu og bumbult leika eftir átið ákvað ég að fara heim, skrifa nokkur vel valin og bitur orð, kreista kirtla og loka mig frá umheiminum í prison break, þættir sem ég hélt að ég ætti aldrei eftir að horfa á en þeir koma ótrúlega vel óvart, þar sem aðalleikarinn minnir mjög á van dam í leikhæfileikum bætir hann það feiknarvel upp með líkamsbyggingu og vöðvamassa...

lofaði emmý slúðuremeili... en þar sem það heitasta hjá mér þessa dagana er að gera nokkur vel valin heimilisstörf, vera með dúllukrúttum og fara til belgíu í tímakaupsferð verður hann að bíða betri tíma, ekki nema þú finnur slúður adrenalínið renna við þessi orð? =)

 föstudagurinn var samt ótrúlega næs... fór á víkíng á íslenskt kvöld þar sem íslensk hljómsveit var að spila og svo á paja á braselískt kvöld, svo á mukó á endakvöld og svo á white á alþjóðlegt kvöld og svo á k'ramba með nokkrum illa hirtum strákum ... daginn eftir var ég velslöpp og einni ástarjátningu ríkari, ætli ég sé ekki stelpa nr. 9463 (mér líður svo einstakri)...

 kv. bitrabólubegga

ps. óska öllum elskuhugum gleðilegs dags... (meint)


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 17:22:17 / begga

sæl =)

ógó næs að vera á lífi eftir þriðjudaginn...

 ég fór í sund með nokkrum perum og tók ákvörðun að hætta þessum heigulskap og kasta mér út í djúpulaugina... s.s. að keyra aaaaaalein (með ólöfu peru) eitthvert sem ég vissi ekkert hvar var.. ég er fokk gáfuð, en ég notaði bara Skúla (navigation systemið) og hann með leikni sinni tók mig í hálftíma bíltúr um lúxemborg með flóknustu, þröngustu og erfiðustu leið sem ég hugsanlega hefði getað farið til að komast þángað, hálfviti... en það urðu engin stór óhöpp nema kannski bara andlega þegar ég keyrði næstum því á mann.... ég er brjálað góður keyrmaður... ps. ég rúnta um á ótrúlega stórum og heimilislegum volvo jeppa, pabbi verður stoltur þegar ég kem heim og get keyrt jeppann eins og enginn sé morgundagurinn... =)

svo í sundi þarf maður að vera með sundhettur úr gardínuefni ... brjálað stuð...

svo í gær fórum við og kvöddum krístínu, eina peru sem fór heim í dag. Fórum út að borða á óendanlega fensí veitingastað sem var brjálæðislega dýr, mér líður eins og ég lifi bara einhverju brjálað dýru lúxuslífi hérna í lúx (þetta átti ekki að hljóma svona hallærislega). En það var samt bilað gott og ég hef aldrei verið jafn södd á minni stuttu ævi. En svo var haldið á víking sem ég hérumbil get ekki sést inn á vegna skömm =) En það er án efa óhappa staðurinn minn. Ég var m.a. spurð hvort ég væri ólétt... jááá ég aldrei aftur að borða eða fara í kjólinn sem ég var í..

en annars finnst mér bilað krúttlegt að nína (krúttlega stelpan sem ég er að passa) finnst ótrúlega gaman að horfa á futurama á frönsku í tölvunni minni.. var ég búin að segja ykkur að hún talar þrefalt betri frönsku en ég ...

er heilbrigt að vera öfundsssjúk út í 5 ára fólk??? :)

annars eru allir bara óviðjafnanlegir hér í lúx...

kv. mjög svo ánægða begga sem er alls ekki í þrælabúðum =)

ps. það verður að setja 00352 áður en maður hringir eða sendir sms í símann minn... þá er númerið mitt s.s. 00352 691 606 196, endilega að skrifa eitthvað hlýorðað eða jafnvel bara hringja og tjá ást.. allt er gott..

ps2. íris fyrirgefðu að ég sendi ekkert til baka ég var sofandi þegar ég fékk þetta og svo bara gleymdi ég því og mundi ekki eftir því fyrr en ég sá kommentið þitt .. .en ég elska og sakna þín ótrúlega heitt shaggy minn... kv. sparky... (það er töff að eiga gælunöfn)

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 13:44:20 / begga

sæl 2

19 Cite Um Shclass
 5880
 Hesperange
 Luxembourg


Er s.s. nýja heimilisfangið mitt þessa stundina.. þar sem ég bý í stóru fjölbýlishúsi, í stóru herbergi, með stórum fataskáp og rúmi sem ég fæ víðáttubrjálæði í... :D Ég fékk svo símanúmerið mitt í gær... auðveldasta númer sem ég hef séð ... það er alveg eins áfram og afturábak... 691 606 196, ef þetta númer eitt og sér er ekki ástæða til að  eiga heima í lúx þá veit ég ekki hvað...

en ég hitti nokkrar perur á föstudaginn og  í gær (au pair = perur) og lýst svona líka óendanlega vel á þennan peruhóp.. ég get kannski ekki sagt að eftir gærkvöldið að þeim líst eitthvað brjálað vel á mig, ég tók klassísku bergþóru á þetta, borðaði súpu í kvöldmat og drakk óhóflega í samræmi við það, og var skutlað mjög svo snemma heim vegna lítils úthalds (vel orðað =)?? ) dadara... ég var alveg viss um að ég hafði verið með óþolandi mikil læti þegar ég kom heim og var viss um að þau myndu senda mig með næsta flugi heim, en ég var víst mjög hljóðlát og þeim fannst dauði minn bara fyndinn...

en ég ætla bara að horfa á heroes og vera ógeðslega óendanlega titarandi þunn...

 <-- skrifaði s.s. "sexy pear" á google...

kv. þunnabegga


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 20:24:58 / begga

sæl =)

óki færslan fyrir framan, sjúúúúklega niðurdrepandi, við munum afneita henni, en ekki eyða því svona lélegar færlsur eru öðrum víti til varnaðar... :haha: ég er s.s. í aðeins betra skapi  =) =)

en ég er bara flutt til LÚXEMBORG og ætla að lifa og hrærast í afbrigði af bóhem lífi, fæ ekki að upplifa það í ræmur eins og lilja en það mun gerast. Núna ætla ég bara að njóta mín sem au pair í alþjóðlegu umhverfi. Þetta eru bara 4 mánuðir... og þar sem ég er fiðrildi þá er þetta ekkert að koma neinum á óvart... =)

Ég er s.s. hjá dásamlegri fjagra manna vísitölu fjölskyldu, eins og fjölskyldufaðirinn orðaði það, en þau eru ótrúlega krúttleg jarðbundin og gera allt til að láta okkur öllum líða vel. Yndisleg 5 ára stúlka býr á heimilinu og  5 mánaða strákur og ég vona bara að við eigum eftir að skemmta okkur óendanlega vel saman í þessu lífsdjammi næstu mánuðina.

Ég fór s.s. með pabba krúttlingi í dag hvalfjörðin því göngin voru lokuð, ótrúlega mikil heppni í mér alltaf (gerðist líka á leiðinni til danmerkur) :haha: svo lennti ég hjá ótrúlega pirruðu fólki í flugvélinni sem skaut mig með augunum þegar ég vingjarnlega spurði hvort ég mætti komast á klósettið (var búin ða geyma þetta sjúklega lengi ef ég hefði beðið lengur hefði það endað með spítalaferð), svo komu Halldór (fjölskyldufaðrinn) og Nína Margrét (prinsessan á heimilinu) að sækja mig þar sem við áttum 3 tíma bílferð fyrir höndum, við bæði gleymdum að beygja og þurftum að taka svaka krók og urðum bensínlaus á leiðinni... djamm, alltaf ég í heppninni.... Svo núna er ég bara í þreytu móki og óska öllum farsældar á komandi dögum...

kv.

jafnaðargeðs begga... ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 06:36:39 / begga

.....



ég er komin heim... sjúklega næs?
ég hef ekkert að gera í augnablikinu nema að vera í sjálfsvorkunn, ástæður hennar eru m.a.:
hvert fór busaárið mitt?
hvað á ég að gera eftir áramót?
það er ein vika í eftir áramót?
afhverju þurfti marissa að deyja?
hvert fór gærkveldið?
mun ég lifa árið 2056?
mig langar til útlanda, lifa og hrærast í bóhem lífi...

mér finnst bara að eftir að ég verð eldri (ekki það að ég sé gömul) en þá verður allt leiðinlegra, ég sakna skinkuáranna... hvert fór áhyggjulausa fulla stelpan, dj sóley...

áramótaheit: gera eitthvað nýtt á hverjum degi, sjúklega öðruvísi...
                   bömmerlaus

skap : sjúklega pirrand neikvæð
tónlist: Space dementia - muse



» 2 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 20:22:19 / begga

danmörk er best...

vildi bara koma því á framfæri hvað lýðháskóli rokkar... maður þarf ekki að elda, læra, hugsa .. ég á eftir að sakna þess óendanlega mikið.. það sýgur feitan að fullorðnast (þó að ég mun ekki vera holdgervingur þroskuðu persónanna..)

í dag var kveðju stund í skólanum allir að gráta og svona huggulegt, fyndið að kveðja fólk sem maður hefur ekkert mikið verið að tala við og það svona ; ja´svo pössum við að halda sambandi og þegar ég kem til íslands hringi ég í þig... uuuuhh já nei fyrr mun ég morkna ..

sagði líka bless við rebekku min yndlings værelseskammerat og hún gaf mér jólagjöf.. ég sakna hennar nú þegar og þeirra róandi áhrifa sem hár hennar býr yfir...

en allavega svona skiptinemafaratilfinningar (það er orð) í gangi, mig langar ekki heim (mjög elskulega meint) en við fyrsta tækifæri flyt ég aftur út.... sjá hvernig ástarflingið hjá jens blaðamennskukennara og marie sihm fyrrverandi krogerupnemanda gengur...sagði hann konunni sinni? ætla þau að vera saman? eru þau ástfangin? þegar hún verður 40 verður hann 70? svo hvort nynne krogerupnemandi fari með erik boel skólastjóra krogerup til new york, en hann bauð henni það þegar hann gisti hjá henni eftir eitt teitið.. já krakkar mínir, lýðháskólar draga fram skrýtnar tilfinningar hjá fólki.. svalt..

en sjáumst..

kv. tilfinningabegga...

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 20:41:10 / begga

gvuuuuð minn góður..!!

þá er að dragast að heimkomu.... styttist með hverri sekúndunni.. (en ekki hvað)

bittersweet tilfinningaflækjur hægri vinstri

dæmi:

hvað á ég að gera eftir áramót...

hvar á ég að fara að vinna...

í rvk eða akr..

bónus eða olís

á ég að fara að vinna..

fara leigja í köben..

á ég að klippa mig gegt öðruvísi og flippað...

eða hafa hárið allt eins..

ljóst dökkt rautt blátt grænt???

hver er tilgangur lífsins...

hver er ég??

hvar er friðrik???

eitt af því sem ég er þó ekki vafa eða tilfinningaflækju um er að nudda karí...

ef (og líklegast þegar) ég fer að læra læknisfræði á það að vera island eða danmörk..

þetta voru leiðindi í boði bergþóru...

svona til að jafna út færsluna

þetta er ljósmyndasýningin "different ppl of the worlds" í boði bergþóru..

annars er karí mest pirrandi og kúkalabbslegasta mannsveskja (jú það eru orð) í heimi... ég ætla ekki að nudda hana...

litlu yndislegu systkini mín urðu 11 ára í gær, ég man þegar þau voru í hitakassa ógisslega krumpuð og sæt.. núna eru þau í langtímasamböndum og í merkjafötum (svöl og elskuleg)

ásdís er líka ein af svölustu manneskjunum sem ég þekki... hún og sögu sagann hennar.. einstök..

allavega þá ætla ég að dempa mér í ekkertleikann (annað ágætis orð) og njóta þess að gera ekkert á meðan ég get það...

próf eru svöl...

kv. tilfinningakreppubegga

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 12:31:50 / begga

ohhhh

alt i orden... skoh sjúklega neyðarlegir dagar upp á síðkastið og toppið verður á eftir... allaveganna

á þriðjudaginn vorum ég og rebekka búnar að ákveða að taka lestina yfir til malmö til að vera menningarlegar og upphefja heimsborgarann í okkur (eða ég fór með því hugarfari, rebekka vildi bara fara í hm)... allaveg ragnheiður kom svo með okkur en karítas var svo blönk að hún neyddist til að halda sig í skólanum og klippa táneglurnar tvisvar eða eitthvað álíka leiðnlega heimskulegt...(broskall) Malmö reyndist allaveganna mjög huggulega falleg borg en á endanum var ekkert meira í boði fyrir okkur þannig við héldum heim. Við eigum s.s. svona 7zone klippikort sem gildir alla leiðina TIL malmö. Svo vorum við á lestarstöðinni, lestin alllveg að fara en engin box til ða klippa miðanna í. Heyrðu þá var ekki hægt að nota miðanna til BAKA. Við vorum s.s. þarna sænskpeningalausar, information kiosken var lokaður og við í algjöru rusli.

  <-- rebekka á góðum degi

Við spurðum STARFSMANN á lestarstöðinni hvernig við gætum keypt miða og hann af góðmennsku sinni sýndi okkur það. Svo fór hann sína leið og við kíktum á verðin og fátæka námsmanninum í okkur var misboðið, þannig við ákváðum að leika heimska íslendinginn og klippa svo bara þegar við værum komnar yfir til dk. ég var næstum því búin að kasta upp af stressi, og rebekka vill aldrei aftur fremja glæp með mér. En allavega sagan ekkí búin, heyrðu svo kom lestarvörður til að athuga hvort við værum ekki löglegar í lestinni. Rebekka í mesta sakleysi byrjaði að ruglumbulla söguna okkar en ég og ragneiður fengum hjartaáfall.. heyrðu var þetta ekki sami kauði og hafði kennt okkur á vélina nokkrum mínutum fyrr og ef það hefði ekki verið fyrir slaka ensku kunnáttu hjá greyið manninum þá værum við núna 5000 kr. fátækari. Hann s.s. hennti okkur út á næstu stoppistöð í svíðþjóð og sagði okkur að hunskast til að kaupa miða. Þarna var ég á barmi taugaáfalls. ég henntist s.s. upp í næsta sjálfsala en hey, þá ´tóku þeir ekki íslenska drasl kortið mitt þannig ég neyddist til að fremja annan glæp. Við náðum hinni lestinni 20 mínútum seinna og lestarferðin til dk er eiginlega bara ennþá í móki, man þó eftir ástúðlega faðmlaginu sem ég fékk frá rebekku.. við náðumst þó ekki og náðum að klippa miðann á flugvellinum, þá var eins og allir vöðvar í líkamanum hefðu slakað á og ég er eiginlega ennþá í slókunarmóki.

En svo náði ég upp í skóla klukkan hálfníu en stelpurnar fóru að fá sér húðkrabbamein (ljós). Þar voru íslensk-danskar stelpur að kynna einhvern listahóp, þær hafa unnið grammy verðlaun og eru víst þvílíkt celeb en lifa samt einhverju bóhem lífi í köben (nett afbrýðisemi) .. mæli með www.ingenfrygt.dk (heimasíðan þeirra).

Svo á miðvikudaginn fórum við til köben á danssýningu og það er líka sjúklega löng saga og ég er búin að taka út l0ngu sögurnar í þessari færslu þannig ég punkta hana..:

-fisketorvet

-út á röngum stað í lest (við erum ógisslega klárar)

-strætó bílstjórar í köben eru ekki með staðarskyn

-pervertískar fótboltabullur

-íslenskt maraþon hlaup með hm poka

-misstum af fyrri hluta sýningarinnar

-seinni hlutinn var samt óendanlega flottur

-ég sé fram á það að ég þurfi að byggja upp vöðva og minnka um svona 10 cm til að fá hin fullkomna danslíkama...

en núna klukkan 16 að staðartíma, munum við í hinu fræga dansteymi krogerup halda 15 mínútna ógisslega sjúklega flotta danssýningu sem við munum svo ferðast með á milli asíulanda og græða milljónir.. ?!

svo ein svona stúlknahárpæling í endann.. á ég að setja ljósarstrípur aftur í rótina eða gera eitthvað ógisslega "fleeeeppað" og prófa að lita eins og rótin mín er og vera ógisslega heeeit og naturel, og ef það kemur vel út þá þarf ég aldrei að lita á mér rótina og það er heví billigt... (nísk?) .. eeeeendilega tjáið ykkur um málið...

kv. (ó)glæpabegga

<-- ég verð sjúúklega heit í framtíðinni..!


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 21:30:12 / begga

ast er eins og ad borda supu med gaffli ; thu færd aldrei nog...

æl... (s.s. ekki sæl)

bara ad byrja thessa færlsu a thessu venjulega.. eg er s.s. bolvud... (og ps. thessari færslu fylgja engir broskallar thvi eftir ad hin islenska ragnheidur lysti yfir fyrirlitningu sinni a broskollum a einkar sannfærandi hatt hef eg snuist gegn theim... nei eg er ekki aud sannfærd...)

um thad bil tvær vikur eru i heimkomu mina og eg er viss um ad thid erud oll ad æla af spenningi.. (ikke?) en eg finn fyrir innilokunarkennd, tilvistarkreppu, otta vid islensk jolalog og venjulegt lif...

allavega, skolinn vard 60 ara a fostudaginn og af thvi tilefni var efnd til afmælisveislu thar sem elliærir og eilifsungir gamlir nemendur komu til ad medfagna, tveggja tima ræduhold, thriggja retta maltid, fritt afengi, truno og gongugrindardansinn frægi stodu mjog hatt uppi....

annars a laugardaginn s.s. i gær, for eg med ragnheidi hinni og lilju i lest til næsta bæjar adeins til thess ad borda oendnalega gott nachos (ja hvad leggur madur ekki a sig fyrir sma fitu i kroppinn), en utaf thynnindum og leidindum var ekkert annad betra ad gera, annars i gærkvoldi stod eg i thvi ad misthyrma ragnheidi, eda liggjandi i moki a golfinu hja lilju... svo var eg ordin svo threytt og lilja var byrjud ad kippast til af svefnsyki thannig eg akvad ad halda upp i herbergi, thar sem rebekka kom og helt voku fyrir mer til um halffimm i morgun.. mókdagurinn mun vera nafnid a deginum...

en eg var ad koma ur kærlighedsaften med Rikke, s.s. astarkvold thar sem vid fengum ad spyrja einn kennarann (frabærasta kennarann) spruningar um ast og hun svaradi af lyst og einlægni, sagdi okkur m.a. fra framhjahaldi sinu med bædi nuverandi manninum hennar og ur fortidinni, thid hafid ekki hitt astsjuka manneskju fyrr enn thid hafid hitt rikke, ymindid ykkur steingrim braga eda hannes med astarkvold.. ometanlegt...

annars langar mer ad fara ad leigja og vinna i köben... einhver med? (var eg buin ad koma thvi a framfæri ad eg er oákvednasta manneskjan sem fyrir finnst a thessu jardriki)

fylgjandi mynd mun vera af hamingjusamasta giftingardegi lifs mins (eg og rasmus) <-- hann reyndist vera aaaaaadeins of væmin

tharna var eg ekki alveg jafn glod a thvi (enda fjolskyldufyrirfram akvedid brudkaup, s.s eg og ahmed) <-- thetta var nu avisun upp a heimilisofbeldi

kv. tviskilna begga...


» 14 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 12:54:11 / begga

nooo

ókí.. ógisslega næs að vera óendnalega ofurbölvuð ... óveióveióvei... hversu mikið langar mig að koma heim eftir 3 vikur... uuuhhhhh NÚLL!!!!

og svona til að vera í neikvæðuhliðinni aðeins lengur þá fer ég ekki í útskriftarferðina... verð að viðurkenna gjaldþrot mitt!!! eða fátækt mína, en ég mun eyða þeim tíma í snjógóðu veðri eða frosti.. DJAAAAAAAAMM!!

en til ánægjulegri umræðuefna helgin var ótrúlega skemmtileg, laugardagskvöldið var vinaveislukvöld og hversu heit veisla var það... ótrúlega lekkert kvöld reyndar fyrir ákveðna aðila... :haha: sumir voru einhverfir félagsskítar, og sumir komu út úr skápnum og enn aðrir reyndu á "midget fetishið" sitt....mjög svo óafslappandi 2 tíma svefn var svo á boðstólnum daginn eftir, vandræðalegur brunch og þynninda þrífingar....

 <-- sumir voru svalir á laugardagskvöldið

svo í gær fórum við til köben til að skoða keramik... gaman.... nii, og svo 6 tíma ótrúlega langdregin kvöldverður í mest hipp íbúð sem ég hef komið í, óaðfinnanlegur matur og leiðinleg lestarferð heim, en þar sem ragnheiður fór aðeins á undan okkur heim þá var hún ekki alaveg með á nótunum og fór út 1 lestarstöð of seint, og það tók hana 45 mín að labba heim.. húrra fyrir staðarskyni ragnheiðar...

eeeeen núna er ég búin í pásu... seinna 2 tímarnir af 5 tíma dansæfingu, ég fíla svita :haha:

en allir að gera þetta

1. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér eitthversstaðar, myndirðu halda að ég væri á föstu eða lausu?

2.Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?

3.Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?

4.Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?

5.Hvaða lag minnir þig á mig?

6.Hverjum öðrum er röddin mín líkust?

7.Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig?

8.Hversu vel telurðu þig þekkja mig?

9.Hvernig stráka fíla ég?

10.Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?

11.Hvað er mest einkennandi við mig?

12.Hvaða búðir elska ég að fara í?

13.Lokaorð til mín?

svarið eða verið kassar.... ALLIR

kv. sveittabegga


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 16:47:48 / begga

lúsimclúslús

thad er lúsafaraldur i skolanum minum, mre personulega finnst thad óóóóógisslega fyndid ad thvi ad vegna mjog óskemmtilegra hluta er thad næstum thvi omugulegt fyrir mig ad fa thann skratta, vil samt koma thvi a framfæri hversu ofordomafull su tegundin lús er og sest ad med jafnadargedi í bædi skítugt og hreint hár, svööööl.... allavega thad var gerd allsherjar lusarleit i harinu a nemendum i dag, thar sem eg tok m.a. kambinn og kemdi nokkra kolla, fengum lika ad vita thad i morgensamling i morgun ad engin lusasjampo virka a thessa akvednu tegund af lus thannig vid verdum bara ef, gud fordi fra thvi, vid faum lus ad kempa okkur med harnæringu i einni og kamb i hinni annan hvern dag i 2 vikur... svaaalt

en svona í heilbrigdari kantinum... en eg hitti fodur minn og pálínu (sem mer finnst afar yndislega fallegt nafn), aftur a laugardaginn, eftir ad hafa sed leikrit um innflytjendur fra danmorku (sem voru heitari en lifid), thar sem vid fengum okkur enn og aftur himneskan hadeigisverd ad hætti mama rosa og fell fra thugginu i elegantid og pantadi mer lax (thar sem eg hef heyrt ofaar kakkalakkasogur um stadinn vil eg samt halda ad thetta var lax), en svo leyfdum vid pabba ad fara med alla pokana okkar, sem voru ofair (hann var s.s. eins og barinn eiginmadur a leidinni i stræto.. svaaalur) og svo heldum vid pala bara afram i fansinum thangad til ad fætur okkar yfirgafu okkur og vid thurftum ad fara heim... (sjaidi thetta fyrir ykkur), thegar vid komum til ragnheidar attu birna og kristinn 30 ara brudkaupsafmæli (sem eg mun aldrei upplifa thvi thegar eg verd 45 ara verd eg skilin og ætla ad leyta Juan (sem er midaldra gitarsnillingur med skapahar i andlitinu) og finna groovid mitt aftur) en allaveg fengum bestu ostakoku sem til er, bara ad hugsa um hana veitir mer oheilbrigda fullnægd.. mmm juan...:haha: allaveg vil eg thakka pabba og palu ædislega fyrir dagana og ragnheidi fyrir oendanlega godan mat...

<-- juan ad flippa

um kvoldid var svo fest i skolanum thar sem einhver vard andsetinn af svolu typunni og sprautadi ur slokkvulidstæki yfir allan songsalinn... og einhver vard bara andsetinn :$

svo a sunnudeginum i thynnkunni bordadi eg allt, lika koddann minn og svo gerdum vid islensku stelpurnar mexikanskan (frumlegt?) her eftir er eg komin i flokk med botnlausu folki eins og gaurinn sem leikur i lost og rebekku... :haha:

<-- eg (thegar eg festist a eydieyju og vard olett) ad reyna ad narta i gaurinn.. (tvitækt)

vikan er svo buin ad einkennast af jolagjafa innkaupum og brjaludum lærdomi..:$ hahahahah in your faces... :haha:

kv. botnlausa begga


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6